„Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Prestar á Snæfellsnesi geta brugðið sér í hin ýmsu dulargervi en nú eru það „kisuprestar”, sem eru hvað vinsælastir í barnastarfi kirknanna á svæðinu. 13.5.2024 20:31
Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Það færist sífellt í vöxt að dýr séu notuð í meðferðum með börnum til að bæta lífsgæði þeirra, ekki síst hundar. Gott dæmi um þetta er sálfræðingur í Reykjavík, sem ætlar sér að nýta sinn hund í tímum með skjólstæðingum sínum og í Fossvogsskóla mætir hundur tvisvar í viku með eiganda sínum í vinnuna. 12.5.2024 20:31
Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Það stendur mikið til á Patreksfirði því um hvítasunnuhelgina verður haldin þar hátíð íslenskra heimildarmynda. Auk þess verður boðið upp á plokkfiskveislu og limbókeppni. 12.5.2024 12:29
93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Þú ert aldrei of gamall eða gömul til að syngja í kór en það þekkir Ingibjörg Helga, sem er 90 ára og Steinunn Aðalbjörg, sem er 93 ára og syngja saman í kór á Selfossi og Reynir, sem er 90 ár og syngur í kór í Vík í Mýrdal. 11.5.2024 20:22
Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Sálfræðingur, sem vinnur í áfallateymi á bráðamóttöku Landspítalans, segir starfið mjög erfitt en á sama tíma gefandi því það séu forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins, en að það taki á. 11.5.2024 13:31
Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Jón Gnarr verður næsti forseti Íslands ef marka má forsetakosningar, sem fóru fram í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri í dag. Einn nemandi gaf Baldri Þórhallssyni sitt atkvæði því hann á kött, sem heitir Baldur. 10.5.2024 20:05
Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Túlípanar eru alltaf að verða vinsælli og vinsælli til tækifærisgjafa eða bara til að hafa heima á stofuborðinu. Í gróðrarstöð í Mosfellsdal eru ræktaðar 95 mismunandi tegundir af túlípönum. 9.5.2024 20:04
150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Landsspítalinn hefur sinnt um 150 þolendum ofbeldis í nánu sambandi frá því að nýtt verkefni spítalans, sem kallast „Hof“ hófst í nóvember 2022 þar sem sérstakt áfallateymi er við störf á bráðamóttöku spítalans. 9.5.2024 13:31
Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Ærin Stóra Svört á bænum Bjarnanesi í Hornafirði gerði sér lítið fyrir og bar fimm hraustlegum lömbum í gær, sem öll eru svört eins og foreldrar sínir. Ærin er sex vetra en hún var geld þegar hún var gemlingur en hefur fjórum sinnum verið fjórlemd og svo fimmlemd núna. 9.5.2024 12:01
Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Kúanöfn í íslenskum fjósum eru fjölbreytt og mörg þeirra mjög skemmtileg. Algeng nöfn eru eins og Skjalda, Branda, Skrauta og Blíða en í fjósinu á Hvanneyri eru ráðherranöfn vinsæl og þar stendur Áslaug Arna sig einstaklega vel í mjöltum. 5.5.2024 20:07